Kæru viðskiptavinir

Í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir um rekstrarumhverfi netverslana með áfengi höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka vefverslun Vínkvenna.

Vínkonur urðu til sem hugmynd vinkvenna sem vildu vita hvað væri í glasinu sem þær drukku og fannst vanta léttari valkosti. Markmið okkar var að bjóða sérvalin vín með lægri sykurstuðli, vegan og glútenlaus.

Við erum stoltar af okkar sérstöðu og fullar þakklætis fyrir þann stuðning sem við höfum notið.

Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir viðskiptin, traustið og áhugann sem þið hafið sýnt okkur frá upphafi.
Skál fyrir ykkur!

Kveðjur,
Ragnhildur vínkona

Hugsaðu um það sem er í glasinu

Léttari valkostur

Vínin okkar henta vel þeim sem vilja njóta þess að drekka góð vín, en um leið minnka sykurneyslu sína. Vínin koma aðallega frá Vínbændum í Evrópu og eru „lite“ í sömu skilgreiningu og „lite bjór“. Við höfum sumsé handvalið vín sem hafa lágan sykurstuðul og eru að auki vegan, glútenlaus og mörg lífræn.

Næringarupplýsingar

Vínkonur vilja vita hvað er í glasinu og hafa aflað upplýsinga um næringargildi frá framleiðendum, smakkað og sérvalið frábær vín sem uppfylla okkar ströngu skilyrði um sykurmagn. Öll vínin okkar hafa minna en 2 grömm af sykri í líter.

Ábyrgir framleiðendur

Við leggjum áherslu á að bjóða vín frá smærri vínræktendum og fjölskyldu- og kvendrifnum fyrirtækjum undir formerkjum sjálfbærni og/eða lífrænnar ræktunnar.

Kannaðu úrvalið

RAUÐVÍN

HVÍTVÍN

FREYÐIVÍN

RÓSAVÍN

STERKT

Vertu Vínkona

Fáðu fréttir, fróðleik og tilboð í pósthólfið.

Skrá mig
Því miður kom villa fram við að bæta þér á listann. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.
Takk fyrir að gerast Vínkona!

Veistu hvað er í glasinu þínu?

Veistu hvað er í glasinu þínu?

Um Vínkonur

Um Vínkonur