Um heildverslunina

Við erum fyrirtæki með sérstöðu í innflutningi og heildsölu á vínum sem innihalda lítinn sem engan sykur, eru lágkolvetna og flest gerð undir formerkjum sjálfbærni eða lífrænnar ræktunnar. Áhersla er lögð á að bjóða vín frá smærri vínræktendum, fjölskyldu- og kvendrifnum fyrirtækjum. Vínkonur er 100% í eigu kvenna.

Öll vín Vínkvenna eru eingöngu seld til aðila með rekstrarleyfi veitingastaða í flokki 2 og 3 og til þeirra sem heimild hafa til heildsölu áfengis. Lágmarkspöntun 3 flöskur.

Umhverfisstefna

Vínkonur leggja áherslu á að hafa umbúðir sem umhverfisvænastar og endurnýta umbúðir þegar vörur eru sendar frá okkur. Við forðumst að nota plast og endurnotum það sem berst til okkar.

Við hvetjum fólk til að drekka af ábyrgð.