Skilmálar
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu vinkonur.is. Eigandi Vinkonur.is er Mýra vistfélag ehf kt 580221-1300 Dugguvogi 42, 104 Reykjavík. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur vinkonur.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Þessir skilmálar eru samþykktir við fyrstu vörukaup eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki og eiga þá við lög um um þjónustukaup nr. 42/2000. Lögin gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessa skilmála sleppir.
Vinkonur.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda í vefverslun. Vinkonur.is býður einnig kaupanda að fá vöruna senda á næstu Dropp stöð, senda heim með Dropp eða sækja að Dugguvogi 42, 104 Reykjavík á umsömdum tíma.
2. Upplýsingar um verð
Verð í vefverslun Vinkonur.is og útsendum markpóstum eru með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Vinkonur.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Vinkonur.is mun hafa samband við viðskiptavin og bjóða nýja vöru eða endurgreiðslu eftir atvikum.
3. Persónuupplýsingar
Hér getur þú nálgast persónuverndarstefnu Vinkonur.is.
4. Greiðsla
Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum hjá vínkonum.is. Greiðsla með korti fer í gegnum örugga greiðslugátt frá Teya.
Millifærsla: Hægt er að greiða með því að millifæra inn á reikning Vinkonur.is eins og kemur fram við greiðslu fer pöntun í gang um leið og greiðsla hefur borist inn á reikning
5. Skilaréttur
Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum nema ef um gallaða vöru er að ræða. Þá er varan endurgreidd að fullu innan 2 mánaða frá því að neytandi varð var við galla. Vinkonur áskilja sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð.
6. Annað
Vinkonur.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessa skilmála, kaupanda verður tilkynnt um þær breytingar sem munu verða á þessum skilmálum.
7. Varnarþing
Rísi upp ágreiningur um þessa skilmála má reka mál vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr 91/1991.